Ólafur Ingi Skúlason reyndist liði SønderjyskE dýrmætur í kvöld þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 2:1 útisigri á AGF í dönsku knattspyrnunni í kvöld.
Sigurmark Ólafs kom ekki fyrr en á 88. mínútu. Sölvi Geir Ottesen lék einnig allan leikinn hjá SønderjyskE.