Mourinho: Ég mun þjálfa Real Madrid

Jose Mourinho þjálfari Inter Milan.
Jose Mourinho þjálfari Inter Milan. Reuters

Portúgalinn litríki Jose Mourinho heldur áfram að fóðra fjölmiðla á skemmtilegum ummælum. Í dag er haft eftir honum á Eurosport að hann muni þjálfa Real Madrid en slík vistaskipti séu hins vegar ekki tímabær.

Þjálfari Real, Manuel Pellegrini þykir valtur í sessi þó svo að Real eigi enn möguleika á spænska meistaratitlinum. „Blöðin segja að ég sé kominn með annan fótinn til Madrídar en það er ekki rétt,“ sagði Mourinho og hélt áfram.

„Það er rétt að ég mun þjálfa Real Madrid einn góðan veðurdag. Í hef þjálfað stórlið á Englandi, er núna hjá stórliði á Ítalíu og mun þjálfa stórlið á Spáni,“ sagði Mourinho sem hefur orðið meistari í þremur löndum og reynir nú að vinna Meistaradeildina öðru sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert