Athygli vakti í dag að Ólafur Jóhannesson skyldi ekki velja Eið Smára Guðjohnsen, besta knattspyrnumann landsins, í leikmannahóp sinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Andorra 29. maí. Ólafur hafði sínar skýringar á því.
„Eiður er bara ekki í formi til að spila og þess vegna hafði ég ekki samband við hann. Hann er eins og aðrir í ensku deildinni kominn í frí,“ sagði Ólafur á fréttamannafundi í dag. Hann brást illa við ítrekuðum spurningum um Eið og undirstrikaði fyrra svar sitt.