Keflavík fær FH í heimsókn í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu. Dregið var í bikarkeppninni í hádeginu og fara leikirnir í karlaflokki fram 23. og 24. júní nk. Breiðablik sigraði bikarkeppnina í fyrra en FH var Íslandsmeistari það árið. Breiðablik gerði jafntefli við FH í 32ja liða úrslitnum. FH komst hins vegar áfram eftir vítaspyrnukeppni og ljóst að Breiðablik ver ekki titilinn í ár.
Leikirnir í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu:
Víkingur Ólafsvík - Fjarðarbyggð
BÍ/Bolungarvík - Stjarnan
Fylkir - Fram
Fjölnir - KR
ÍA - Þróttur Reykjavík
Víkingur Reykjavík - Valur
Grindavík - KA