Birkir Bjarnason lagði upp eitt marka Viking frá Stavanger þegar liðið sigraði Odd Grenland, 3:1, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Víkingarnir lyftu sér uppí 6. sætið með sigrinum.
Birkir og Indriði Sigurðsson léku með Viking frá byrjun og Stefán Gíslason kom inná í seinni hálfleik. Árni Gautur Arason lék að vanda í marki Odd.
Brann vann mikilvægan útisigur í fallslag gegn Kongsvinger, 3:0, en Ólafur Örn Bjarnason og Birkir Már Sævarsson voru í liði Brann. Það er nú komið með 16 stig í 12. sæti deildarinnar og komst í fimm stiga fjarlægð frá fallsæti deildarinnar.