Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu, U17 ára, vann í kvöld sigur á Svíum, 3:2, á Norðurlandamótinu í Danmörku. Ísland fékk þar með 6 stig og hafnaði í öðru sæti riðilsins og mætir Bandaríkjunum eða Noregi í leik um bronsið á laugardag.
Guðmunda Brynja Óladóttir kom Íslandi yfir strax á 3. mínútu og eftir hálftíma bætti Aldís Kara Lúðvíksdóttir við marki, 2:0. Hildur Antonsdóttir skoraði, 3:0, á 52. mínútu en Svíum tókst að minnka muninn í 3:2 áður en leiknum lauk.