Josep Guardiola skrifar undir nýjan samning við Spánarmeistara Barcelona eftir því sem fram kemur á heimsíðu félagsins. Guardiola hefur þjálfað lið Barcelona síðustu tvö árin með frábærum árangri en á þeim tíma hefur félagið unnið sjö titla.
Fyrri samningur Guardiola og Barcelona rann út um síðustu mánaðarmót.