Nýliði í landsliðið í stað Steinþórs

Nýliðinn Ólafur Páll í baráttunni við Ásgeir Börk Ásgeirsson leikmann …
Nýliðinn Ólafur Páll í baráttunni við Ásgeir Börk Ásgeirsson leikmann Fylkis. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnumaðurinn Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður Örgryte í Svíþjóð og fyrrum leikmaður Stjörnunnar, hefur dregið sig úr landsliðshópi Íslands fyrir æfingaleikinn við Liechtenstein á miðvikudaginn vegna meiðsla.

Kantmaðurinn Ólafur Páll Snorrason hefur verið valinn í hans stað en Ólafur Páll hefur átt mjög gott tímabil með Íslandsmeisturum FH í sumar. Þetta er í fyrsta skipti sem Ólafur Páll er valinn í A-landsliðið en hann hefur áður leikið með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert