Staðfest er á vef Real Madrid í dag að þýski landsliðsmaðurinn Mesut Özil muni ganga til liðs við félagið eftir að það náði samkomulagi við Werder Bremen um kaup á leikmanninum.
Þessi 21 árs gamli miðjumaður sló í gegn með Þjóðverjum á HM í sumar og voru mörg stórlið í Evrópu á höttunum eftir honum en svo fór að lokum að nífaldir Evrópumeistarar Real Madrid tryggðu sér þjónustu Þjóðverjans.
,,Við virðum að Mesut vilji fara og taka næsta skref á ferli sínum,“ segir Klaus Allofs yfirmaður knattspyrnumála hjá Werder Bremen í yfirlýsingu. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Özil átti eitt ár eftir af samningi sínum við þýska liðið.