Ólafur Jóhannesson þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu hefur gefið út byrjunarliðið sem etur kappi við Norðmenn í undankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvellinum í kvöld.
Þetta er fyrsti leikur þjóðanna í undankeppninni fyrir úrslitakeppnina sem fram fer í Úkraínu og Póllandi eftir tvö ár. Flautað verður til leiks á Laugardalsvellinum klukkan 19.
Byrjunarlið Íslands: 4:2:3:1:
Markvörður: Gunnleifur Gunnleifsson (FH).
Varnarmenn:
Grétar Rafn Steinsson (Bolton), Sölvi Geir Ottesen (FC Köbenhavn),
Kristján Örn Sigurðsson (Hönefoss), Indriði Sigurðsson (Viking).
Miðjumenn:
Gylfi Sigurðsson (Hoffenheim), Eggert Gunnþór Jónsson (Hearts), Veigar
Páll Gunnarsson (Stabæk), Aron Einar Gunnarsson (Coventry), Jóhann Berg
Guðmundsson (AZ Alkmaar).
Framherji: Heiðar Helguson (QPR).
Varamenn: Ingvar Þór Kale, Ragnar Sigurðsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Ólafur Ingi Skúlason, Birkir Bjarnason, Kolbeinn Sigþórsson, Rúrik Gíslason.
Þeir leikmenn sem utan hópsins í kvöld eru: Árni Gautur Arason, Bjarni Ólafur Eiríksson, Brynjar Björn Gunnarsson og Matthías Vilhjálmsson.