Ísland í milliriðil eftir sigur á Armenum

Ívar Örn Jónsson og Árni Vilhjálmsson í leik íslenska liðsins …
Ívar Örn Jónsson og Árni Vilhjálmsson í leik íslenska liðsins gegn Tyrkjum á föstudaginn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ísland er komið í milliriðil í Evrópukeppni U17 ára landsliða drengja í fótbolta eftir sigur á Armenum, 2:1, á Keflavíkurvelli í lokaumferð undanriðilsins í dag.

Ragnar Bragi Sveinsson kom íslenska liðinu yfir strax á 2. mínútu en Nairi Minasyan jafnaði fyrir Armena á 12. mínútu.

Staðan var 1:1 í hálfleik en á þrettándu mínútu síðari hálfleiks fékk Ísland vítaspyrnu og úr henni skoraði Oliver Sigurjónsson, 2:1.

Á sama tíma burstuðu Tyrkir lið Tékka, 6:1, í Grindavík og það eru því Íslendingar og Tyrkir sem halda áfram keppni. Íslenska liðið vinnur riðilinn á innbyrðis sigrinum gegn Tyrkjum en liðin voru jöfn að stigum.

Lokastaðan í riðlinum er þessi:

Ísland 6 stig (6:5)
Tyrkland 6 stig (9:3)
Tékkland 4 stig (6:9)
Armenía 1 stig (2:6)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert