Hannes Þór búinn að semja við KR

Hannes Þór Halldórsson
Hannes Þór Halldórsson hag / Haraldur Guðjónsson

Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er genginn í raðir KR og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við vesturbæjarliðið. Hannes sagði skilið við Framara í gær en undanfarin fjögur ár hefur hann leikið á milli stanganna hjá Safamýrarliðinu.

Hannes Þór leysir Norðmanninn Lars Moldskred af hólmi en KR-ingar ákváðu að endurnýja samninginn við hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert