Grétar Ólafur á leið til Keflvíkinga

Grétar Ólafur fagnar marki með KR.
Grétar Ólafur fagnar marki með KR. mbl.is/Ómar Óskarsson

Knattspyrnumaðurinn Grétar Ólafur Hjartarson er á leið til Keflvíkinga en hann hefur sagt skilið við Grindvíkinga sem hann hefur leikið með undanfarin ár. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag.

Viðræður ku vera á lokastigi á milli Grétars og Keflvíkinga en Grétar kom við sögu í 20 leikjum Grindvíkinga á síðustu leiktíð. Hann kom til liðsins frá KR árið 2008 en lék ekkert 2009 vegna meiðsla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert