Sundsvall áfram í 1. deild

Hannes Þ. Sigurðsson í leik með Sundsvall.
Hannes Þ. Sigurðsson í leik með Sundsvall. mbl.is

Sundsvall tapaði í dag 2:0 í seinni umspilsleiknum við Gefle um sæti í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Íslendingaliðið leikur því áfram í 1. deild á næstu leiktíð en Gefle, sem varð þriðja neðst í úrvalsdeildinni í ár, heldur sæti sínu þar.

Sundsvall tapaði fyrri leiknum 1:0 og því 3:0 samanlagt.

Hannes Þ. Sigurðsson og Ari Freyr Skúlason voru í liði Sundsvall og fékk Hannes að líta rauða spjaldið undir lok leiksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert