Knattspyrnusnillingurinn Cristiano Ronaldo var nálægt því að skora stórglæsilegt mark fyrir Portúgal í gær þegar liðið vann góðan sigur á Spáni í æfingaleik, 4:0. Landi hans, Nani, kom hins vegar í veg fyrir það og var Ronaldo honum bálreiður.
Ronaldo hafði leikið glæsilega á varnarmann Spánar og vippað boltanum svo listilega yfir markvörð Spánverja svo að boltinn stefndi í markið, en á marklínunni kom Nani og skallaði knöttinn í netið. Það var hins vegar ekki svo að Nani næði að „stela“ markinu því hann var dæmdur rangstæður. Ronaldo var svo sannarlega ekki skemmt eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi eða með því að smella hér.