Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid hefur hrist af sér ökklameiðslin sem hann hlaut í leiknum gegn Barcelona á mánudagskvöldið og verður með Madridarliðinu annað kvöld þegar það mætir Valencia í spænsku 1. deildinni.
,,Cristiano Ronaldo er fínn. Hann spilar á móti Valencia,“ sagði José Mourinho þjálfari Real Madrid á fréttamannafundi í dag.
Mourinho og lærisveinar hans hafa átt erfiða viku eftir niðurlæginguna sem þeir urðu fyrir í leiknum gegn Börsungum en Spánarmeistararnir kjöldrógu erkifjendur sína og unnu stórsigur,5:0.