RÚV hefur tryggt sér sýningarréttinn á úrslitakeppni Evrópumóts U21 ára landsliða í knattspyrnu sem fram fer í Danmörku í sumar en Íslendingar taka þátt í keppninni og leika í riðli með Danmörku, Hvíta-Rússlandi og Sviss. Frá þessu var greint í fréttum RÚV í kvöld.
Allir leikir keppninnar verða sýndir í sjónvarpinu og þá verður samantektarþáttur eftir hvern keppnisdag.