Enskir og ítalskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Ítalíu- Evrópu- og heimsmeistarar Inter hafi í kvöld sagt þjálfaranum Rafael Benítez upp störfum hjá félaginu en Spánverjinn tók við þjálfun liðsins af José Mourinho í sumar.
Illa hefur gengið hjá Inter á leiktíðinni þrátt fyrir að félagið hafi um helgina hampað heimsbikar félagsliða. Liðið er í 7. sæti ítölsku A-deildarinnar, 13 stigum á eftir grönnum sínum í AC Milan og þá hafnaði liðið í öðru sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni og mætir Bayern München í 16-liða úrslitunum.