Gunnar Heiðar laus frá Esbjerg

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, bláklæddur, í landsleik Íslands og Portúgal.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, bláklæddur, í landsleik Íslands og Portúgal. mbl.is/Golli

Gunnar Heiðar Þorvaldsson knattspyrnumaður frá Vestmannaeyjum hefur verið leystur undan samningi við danska úrvalsdeildarfélagið Esbjerg en þar hefur hann verið á mála frá árinu 2008. Frá þessu er sagt á vef Esbjerg.

Gunnar hefur ekkert leikið með Esbjerg síðan í júlí 2009 en hann var síðan lánaður til Reading í Englandi og Fredrikstad í Noregi á síðasta ári.

„Þessi niðurstaða hefur legið í loftinu og nú eru báðir aðilar sammála um að tími sé kominn til að leiðir skilji. Hann er því laus allra mála hjá okkur frá og með 31. janúar, og þar með hefur hann möguleika á að finna sér annað félag. Það er ekkert leyndarmál að dvöl hans hjá okkur skilaði ekki því sem vonast var eftir en við óskum honum að sjálfsögðu alls velfarnaðar á ferli sínum," segir Niels Erik Söndergaard íþróttastjóri Esbjerg á vef félagsins.

Gunnar lék 26 leiki með Esbjerg og skoraði 4 mörk, þar af voru 22 leikir og 2 mörk í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur spilað 22 landsleiki fyrir Ísland, síðast gegn Portúgal í október, og skorað 5 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert