Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson mun samkvæmt öruggum heimildum mbl.is skrifa undir fjögurra ára samning við uppeldisfélag sitt ÍBV á morgun.
Gunnar hefur undanfarin ár leikið erlendis og var síðast á mála hjá Esbjerg í Danmörku. Hann var lánaður bæði til Reading á Englandi og Fredrikstad í Noregi á síðasta ári.
Sjá einnig frétt Eyjafrétta.