Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson byrjar á varamannabekk Hoffenheim þegar liðið mætir meisturum Bayern München í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu.
Ekki er langt á milli liðanna í töflunni en Bayern er í 5. sæti með 36 stig en Hoffenheim í 7. sæti með 32 stig.
Leikurinn fer fram á hinum glæsilega leikvangi Allianz-Arena hefst klukkan 14:30.