Hoffenheim fékk útreið gegn stórliði Bayern Munchen í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag og tapaði 0:4 á Allianz-Arena. Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá Hoffenheim á 77. mínútu.
Hollendingurinn Arjen Robben skoraði tvívegis fyrir Bayern í leiknum.
Eyjólfur Sverrisson þurfti að sætta sig við tap gegn HSV á heimavelli 0:1 í fyrsta leik sínum sem aðstoðarþjálfari Wolfsburg.