Ólafur: Eiður hefur átt erfitt uppdráttar

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari í knattspyrnu valdi í 22 manna landsliðshóp fyrir leikinn gegn Kýpurbúum í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer á Kýpur laugardaginn 26. þessa mánaðar. Athygli vaki að Eiður Smári Guðjohnsen hlaut ekki náð fyrir augum Ólafs og var ekki valinn í hópinn.

„Eiður hefur átt erfitt uppdráttar á Englandi og það er ástæðan fyrir því að hann var ekki valinn. Það voru fleiri leikmenn inni í myndinni eins og Brynjar Björn Gunnarsson og Veigar Páll Gunnarsson og þá hefðu Sölvi Geir Ottesen og Jón Guðni Fjóluson verið í hópnum hefðu þeir verið heilir heilsu,“ sagði Ólafur við mbl.is.

Ólafur Jóhannesson ræðir við leikmenn á landsliðsæfingu.
Ólafur Jóhannesson ræðir við leikmenn á landsliðsæfingu. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert