Ari Freyr Skúlason skoraði annað marka Sundsvall í kvöld, með glæsilegu skoti af 30 metra færi, þegar lið hans tapaði, 2:3, fyrir úrvalsdeildarliði GAIS í framlengdum leik í þriðju umferð sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Ari var valinn maður leiksins hjá Sundsvall í leikslok en hann spilaði allar 120 mínútunar. Hallgrímur Jónasson var í liði GAIS í kvöld.