Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eina markið þegar Kristinstad vann góðan sigur á Tyresö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Margrét Lára skoraði úr vítaspyrnu á 15. mínútu og er á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar. Sif Atladóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Erla Steina Arnardóttir léku einnig allan leikinn hjá Kristianstad.
Kristianstad er með jafn mörg stig og Umeå og meistarar Malmö sem eru núna 3:0 yfir á móti Djurgården og munu endurheimta toppsætið ef fram heldur sem horfir.