Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segist vera afar ánægður með sitt lið eftir öruggan 3:0 sigur þess á Stjörnunni í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar, Valitorbikarsins, í knattspyrnu karla. Það sé alls ekki sjálfgefið að vinna svo öruggan sigur á öðru úrvalsdeildarliði.