Knattspyrnudeild HK sagði í dag þjálfara meistaraflokks félagsins, Tómasi Inga Tómassyni, upp störfum. Undir hans stjórn hefur lið HK aðeins fengið eitt stig í fyrstu sjö leikjum 1. deildar og situr á botninum.
Þetta kemur fram á vef HK, www.hk.is.
Ragnar Gíslason hefur verið ráðinn þjálfari HK út tímabilið í hans stað. Ragnar þjálfaði áður lið Stjörnunnar og var leikmaður Stjörnunnar og Leifturs á sínum tíma. Hann hefur verið yfirþjálfari yngri flokka HK í tæp tvö ár.