Svíar báru sigurorð af Kólumbíumönnum, 1:0, í C-riðli heimsmeistaramóts kvenna en leik þjóðanna var að ljúka í Leverkusen í Þýskalandi.
Jessica Landström tryggði Svíum sigurinn þegar hún skoraði eina mark leiksins á 57. mínútu leiksins. Síðar í dag eigast við í sama riðli Bandaríkin og Norður-Kórea.