Fjórir settir út hjá HK vegna agabrots

Ragnar Gíslason þjálfari HK.
Ragnar Gíslason þjálfari HK. www.hk.is

Ragnar Gíslason, nýráðinn þjálfari 1. deildarliðs HK, hefur sett fjóra leikmenn út úr byrjunarliði sínu vegna agabrots en HK sækir Hauka heim í kvöld klukkan 20.00.

Fjórmenningarnir eru Hafsteinn Briem, Atli Valsson, Leifur Andri Leifsson og Eyþór Helgi Birgisson sem allir voru í byrjunarliði HK þegar það gerði jafntefli 1:1 við ÍR síðasta föstudagskvöld. Þeir eru allir á meðal varamanna liðsins í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert