St. Patrick's tapaði toppslagnum

Varnarmenn St. Patrick's Athletic reyna að stöðva Denis Sytnik hjá …
Varnarmenn St. Patrick's Athletic reyna að stöðva Denis Sytnik hjá ÍBV í leiknum á Hlíðarenda mbl.is/Ómar

St. Patrick's Athletic, andstæðingar ÍBV í Evrópudeild UEFA, töpuðu í annað sinn á fjórum dögum í gærkvöld en Shamrock Rovers lagði þá að velli, 1:0, í uppgjöri efstu liðanna í írsku úrvalsdeildinni.

Lið St. Patrick's hafði ekki tapað í 14 leikjum í röð áður en það mætti ÍBV á Hlíðarenda síðasta fimmtudag, en þá tapaði það líka 1:0 gegn Eyjamönnum. Það komst á toppinn á Írlandi um fyrri helgi en Shamrock endurheimti efsta sætið með sigrinum í gærkvöld þar sem Gary Twigg skoraði sigurmarkið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert