Sjötti sigur Philadelphia í röð

Hólmfríður Magnúsdóttir
Hólmfríður Magnúsdóttir mbl.is/Ómar

Hólmfríður Magnúsdóttir og samherjar í Philadelphia Independence unnu í nótt sinn sjötta leik í röð í bandarísku atvinnudeildinni í knattspyrnu og styrktu enn frekar stöðu sína á toppi deildarinnar.

Philadelphia vann Atlanta Beat á útivelli, 1:0. Hólmfríður kom inná sem varamaður á 67. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Veronica Boquete sigurmark liðsins.

Philadelphia hefur nú fimm stiga forystu í deildinni, er með 26 stig, en Western New York Flash, sem er með 21 stig, á hinsvegar þrjá leiki til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert