Úrúgvæ leikur til úrslita í Ameríkubikarnum í fótbolta, Copa America, eftir öruggan sigur á Perú, 2:0, í undanúrslitum keppninnar í La Plata í Argentínu í nótt.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en Luis Suárez, leikmaður Liverpool, gerði útum leikinn snemma í þeim síðari. Hann skoraði á 53. mínútu, fylgdi vel á eftir þegar markvörður Perú varði þrumuskot frá Diego Forlán. Fimm mínútum síðar fékk Suárez langa sendingu fram frá Álvaro Pereira, lék á markvörðinn utan vítateigs og sendi boltann í tómt markið.
Juan Varga, leikmaður Perú, var rekinn af velli á 69. mínútu og sigur Úrúgvæ var ekki í minnstu hættu eftir það.
Paragvæ og Venesúela mætast í seinni undanúrslitaleiknum næstu nótt kl. 00.45 að íslenskum tíma.