Veigar búinn að semja við Rosenborg

Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Stabæk.
Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Stabæk. Reuters

Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Stabæk hefur náð samkomulagi við norska meistaraliðið Rosenborg um samning að því er haft Arnóri Guðjohnsen umboðsmanni Veigars í samtali við norska blaðið Aftenposten.

,,Hann vill fara til Rosenborg og hann er búinn að ná samkomulagi við félagið um samning. Nú þurfa félögin bara að ná samningi um kaupverðið,“ segir Arnór við Aftenposten.

Bæði Rosenborg og Vålerenga hafa verið á höttunum eftir Veigari sem hefur leikið sérlega vel með Stabæk á leiktíðinni og skorað 7 mörk í deildinni.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert