Íslenska landsliðið í knattspyrnu, skipað stúlkum 17 ára og yngri, leikur við Þjóðverja um bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í Sviss á sunnudaginn. Frakkar mæta Spánverjum í úrslitaleik.
Þjóðverjar töpuðu fyrir Frökkum í undanúrslitaleik í dag, 6:5, eftir vítaspyrnukeppni. Staðan var jöfn eftir venjulega leiktíma og framlengingu, 2:2. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingu.
Þjóðverjar komust yfir í leiknum snemma en Frakkar svöruðu með tveimur mörkum á fyrsta stundarfjórðungi síðari hálfleiks. Þýska liðið jafnaði metin á 68. mínútu.