Útvarp KR verður með beina lýsingu frá síðari viðureign KR og FC Dinamo Tbilisi í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA sem fram fer í Tbilisi í Georgíu í dag. Útsending hefst klukkan 16 en flautað verður til leiks klukkan 17.
Jónas Kristinsson lýsir leiknum en að vanda sendir Útvarp KR út á fm 98,3, og á www.netheimur.is og iPhone, iPad, iPod og Android snjallsímum.
Þetta er 324 útsending KR-útvarpsins frá upphafi.
KR-ingar munu eiga við ramman reip að draga í leiknum í Tbilisi í dag etir að hafa tapað fyrri viðureigninni á heimavelli, 4:1.