Lilleström á höttunum eftir Ara Frey

Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason. hag / Haraldur Guðjónsson

Ari Freyr Skúlason, fyrrum leikmaður Vals, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Sundsvall í sænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Samkvæmt frétt Sundsvall Tidende eru tvö norsk félög á höttunum eftir honum og er annað þeirra Lilleström, sem þeir Stefán Logi Magnússon og Björn Bergmann Sigurðarson leika með.

Áður hefur verið greint frá áhuga sænska úrvalsdeildarfélagsins Örebro sem Sundsvall ku hafa hafnað tilboði frá, og Norrköping. sindris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert