Ungverjar og Íslendingar mætust í vináttulandsleik í knattspyrnu karla á Ference Puskas-leikvanginum í Búdapest kl. 17.45. Ungverjar höfðu mikla yfirburði og unni sanngjarnan 4:0 sigur. Mistök leikmanna Íslands voru of mörk og of stór og því fór sem fór.
Eins og segir í fyrirsögninni var Ungverjaland númari of stórt. Ef til vill nokkrum miðað við lokatölur. Enginn leikmaður íslenska liðsins átti sérstakan dag en líklega var það Stefán Logi Magnússon, markvörður liðsins og Birkir Bjarnason sem gerðu fæst mistök. Þá var Eiður Smári Guðjohnsen og Jóhann Berg Guðmundsson ágætir í fyrri hálfleik.
Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is.
Byrjunarlið Íslands: Stefán Logi Magnússon - Birkir Már Sævarsson, Indriði Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson, fyrirliði, Eggert Gunnþór Jónsson, Aron Einar Gunnarsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Birkir Bjarnason, Rúrik Gíslason, Jóhann Berg Guðmundsson, Heiðar Helguson.