„Mér fannst Skagamenn mun slakari nú en þegar þeir rústuðu okkur 6:0 fyrir vestan,“ sagði Þórður Ingason markvörður BÍ/Bolungarvík sem varði víti í 2:1 sigri á ÍA.
„Þeir áttu bara ekki sinn besta dag á meðan við áttum góðan dag svo þetta voru sanngjörn úrslit. Það var líka sætt að vinna fyrir Skagamanninn Guðjón, þjálfara okkar,“ sagði Þórður ennfremur.
Nánar er fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.