Páll var stoltur af öllum Þórsurum

Páll Gíslason, þjálfari Þórs, var skiljanlega sár og svekktur að bikarúrslitaleiknum loknum í dag en Þór tapaði 0:2 í leik þar sem gæfan var liðinu ekki hliðholl.

Þór átti fimm sláarskot í leiknum og til að bæta gráu ofan á svart þá var fyrra mark KR sjálfsmark. 

Páll sagðist vera hundsvekktur yfir því að tapa en jafnframt vera stoltur af öllum Þórsurum í dag. 

Páll sagðist hafa viljað fá vítaspyrnu í leiknum en bætti því við að hugsanlega hefði hún einnig hafnað í slánni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert