Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson réð úrslitum þegar lið hans Norrköping sigraði Djurgården 2:1 í efstu deild sænsku knattspyrnunnar í dag, Allsvenskan.
Gunnar skoraði bæði mörk liðsins með fimm mínútna millibili í upphafi leiks. Fyrra markið
kom á 6. mínútu og hið síðara á 11. mínútu.