Ólafur verður ekki endurráðinn

Ólafur Jóhannesson.
Ólafur Jóhannesson. mbl.is/Eggert

Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, tilkynnti á blaðamannafundi rétt í þessu að Ólafur Jóhannesson verði ekki endurráðinn sem landsliðsþjálfari karla að undankeppninni lokinni.

Samningur Ólafs rennur út í haust og mun stýra landsliðinu út undankeppni EM eins og áður hafði komið fram.

Fram kom í máli Geirs að hann og Ólafur hafi rætt saman í sumar og þessi ákvörðun hafi verið tekin fyrir nokkru síðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert