Fjórar breytingar hafa verið gerðar á íslenska A-landsliðshópnum í knattspyrnu fyrir leikina gegn Norðmönnum og Kýpurbúum í undankeppni EM. Inn í hópinn koma þeir Steinþór Freyr Þorsteinsson, Matthías Vilhjálmsson, Hallgrímur Jónasson og Guðmundur Kristjánsson.
Þeir taka sæti þeirra Hermanns Hreiðarssonar, Heiðars Helgusonar, Gylfa Þórs Sigurðssonar og Arons Einars Gunnarssonar en allir eiga þeir við meiðsli að stríða. Fram kemur á vef KSÍ að möguleiki sé á því að Aron Einar verði leikfær fyrir leikinn gegn Kýpur sem fer fram á Laugardalsvelli þriðjudaginn 6. september.