Drillo bætir tveimur í hópinn

Björn Helge Riise, til vinstri.
Björn Helge Riise, til vinstri. Reuters

Egil „Drillo“ Olsen landsliðsþjálfari Norðmanna í knattspyrnu hefur bætt tveimur leikmönnum inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Íslendingum og Dönum í undankeppni EM sem fram fara 2. og 6. september, Hann hefur kallað á Björn Helge Riise úr Fulham og Taril Elyounoussi úr Fredrikstad.

Morten Gamst Pedersen heltist úr hópnum í gær vegna meiðsla og þá er óvíst með þátttöku Johns Aarne Riise.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert