Nú er það orðið ljóst að John Arne Riise leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Fulham spilar ekki með Norðmönnum þegar þeir mæta Íslendingum í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu í Osló annað kvöld.
Riise meiddist í Evrópuleik með Fulham í síðustu viku og eftir æfingu norska landsliðsins í morgun var það gefið út að hann spilar ekki.
„Ég er ekki 100% og þar með spila ég ekki. Það er betra að gefa eftir sæti til einhvers annars en að spila hálfmeiddur,“ sagði Riise við fréttamenn.