Mikil barátta í 2. deildinni

Högni Helgason skoraði tvö fyrir Hött í dag
Högni Helgason skoraði tvö fyrir Hött í dag Eggert Jóhannesson

Mikil barátta er á toppi 2. deildar karla í fótbolta og minnkaði hún ekkert eftir leiki dagsins þó svo Höttur hafi skellt sér upp fyrir Dalvík/Reyni.

Tindastóll/Hvöt er í efsta sæti þegar tvær umferðir eru eftir með 39 stig. Höttur kemur síðan með 37, Dalvík/Reynir með 35 og síðan koma Njarðvík og Afturelding með 33 stig og Reynir Sandgerði með 32.

Höttur vann Reyni Sandgerði 5:2 í dag og á sama tíma lagði Tindastóll/Hvöt lið Dalvíkur/Reynis með sömu markatölu. Njarðvík og Fjarðabyggð gerðu 3:3 jafntefli í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert