Sölvi Geir Ottsen og Indriði Sigurðsson verða ekki með íslenska landsliðinu gegn Kýpverjum á Laugardalvellinum í kvöld. Vísir greinir frá þessu en Indriði hefur átt við veikindi að stríða en bakmeiðsli hafa verið að angra Sölva.
Þeir Sölvi og Indriði léku í miðvarðarstöðunum á móti Norðmönnum á föstudagskvöldið en líklegt er að Kristján Örn Sigurðsson og annaðhvort Hallgrímur Jónasson eða Eggert Gunnþór Jónsson leysi þá af hólmi.