Arnar Þór Viðarsson lék allan tímann fyrir Cercle Brugge í kvöld þegar liðið sigraði Beerschot, 2:1, í belgísku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Arnar sem á dögunum spilaði sinn 400. deildaleik á ferlinum hefur átt fast sæti í liði Cerlce Brugge sem er í öðru sæti deildarinnar. Jón Guðni Fjóluson sat á bekknum hjá Beerschot en hann hefur ekkert fengið að spreyta sig með liðinu.
Alfreð Finnbogason sat á varamannabekknum hjá Lokeren allan tímann þegar lið hans gerði 1:1 jafntefli við Lierse á útivelli.