Gunnar Heiðar Þorvaldsson var besti maður Norrköping í kvöld þegar lið hans vann óvæntan útisigur á GAIS, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Gunnar Heiðar lagði upp bæði mörk Norrköping sem með sigrinum komst í sex stiga fjarlægð frá fallsæti og er nú í 11. sæti af 16 liðum.
Í Norrköping Tidning segir að Gunnar Heiðar hafi farið fyrir liði Norrköping í kvöld með dugnaði sínum og vinnusemi og aðrir leikmenn hafi fylgt í kjölfarið.