Kolbeinn skorar fyrir Ajax gegn PSV (myndskeið)

Kolbeinn Sigþórsson skoraði gegn PSV.
Kolbeinn Sigþórsson skoraði gegn PSV. Reuters

Kolbeinn Sigþórsson var rétt í þessu að jafna metin fyrir Ajax í stórleik helgarinnar í hollensku knattspyrnunni, gegn PSV á útivelli. Staðan er 1:1 í lok fyrri hálfleiks.

PSV náði forystunni strax á 2. mínútu leiksins. Undir lok fyrri hálfleiks þurfti að gera 13 mínútna hlé á leiknum vegna slæmra meiðsla leikmanns PSV. Strax og leikurinn hófst á ný skoraði Kolbeinn og jafnaði fyrir Ajax en hann var búinn að vera mjög aðgangsharður við mark PSV í fyrri hálfleiknum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert