Íslendingarnir spiluðu ekki í 1. deildinni

Brynjar Björn Gunnarsson sat allan tímann á varamannabekk Reading.
Brynjar Björn Gunnarsson sat allan tímann á varamannabekk Reading. readingfc.co.uk

Þrjú Íslendingalið spiluðu í dag í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Brynjar Björn Gunnarsson leikmaður Reading var sá eini af Íslendingunum þremur sem var í leikmannahópi en hann sat allan tímann á bekknum þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Coventry.

Ívar Ingimarsson var ekki í hópnum hjá Ipswich sem gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough. Þá var Hermann Hreiðarsson ekki í leikmannahópi Portsmouth sem vann Blackpool 1:0 á heimavelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert